Velferð

Þjóðkirkjan kemur til fólksins

Tags: ,

-April 8, 2020

„Við höfum verið með verkefni sem við hrundum af stað í samkomubanninu sem ber heitið Kirkjan kemur til fólksins,” segir Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, í samtali við Alltgott.is.

Páskahátíðin er í vændum sem er ein stærsta hátíð í kristni þar sem dauða og upprisu Jesú Krists er minnst. Fyrir marga eru það því mikil viðbrigði að geta ekki farið í kirkju um páskana eða sótt aðrar samkomur.

Meðal þess sem heyrir undir verkefnið Kirkjan kemur til fólksins er:

  •         Heimahelgistundir á sunnudögum í streymi á visir.is 
  •         Tilveran, þáttur á Hringbraut  um guðfræðileg málefni vonar, birtu, þrenginga og þrautarsigra 
  •         Hljóðvarp um menningar og dægurlíf Kirkjunnar
  •         Netkirkja.is þar sem hægt að nálgast faglega sálgsæslu allann sólarhringinn
  •         Kirkjan til fólksins – ritröð hugvekja í Morgunblaðinu
  •         Nýr sunnudagaskóli frumsýndur hvern sunnudag á netinu
  •         Bæn dagsins í tölvupósti, skráning hér
  •         Biblían á netinu, biblian.isBiblían á hljóðbók
  •         Biblíusögur barna á öllum aldri
  •         Kirkjuklukknahljómur og bænastundir í hádeginu í kirkjum landsins

Allar nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á sérstakri síðu þar sem einnig er hægt að nálgast dagskrá einstakra sókna sem halda úti metnaðarfullri dagskrá: Kirkjan kemur til fólksins