Börn, Velferð

Barnabók sem útskýrir COVID-19

-April 22, 2020

Barnabókin „Hetjan mín ert þú” er bók sem skrifuð er handa börnum um heim allan sem hafa orðið fyrir áhrifum af COVID-19 faraldrinum og er hún aðgengileg ókeypis á netinu. Markmiðið með gerð bókarinnar var að foreldrar eða aðrir sem starfa með eða sinna börnum fái tól til þess að ræða við börn um ástandið sem nú ríkir.  

Hér má nálgast bókina á íslensku en það er Rauði krossinn á Íslandi sem lét þýða hana.

Gerð var könnun hjá um 1700 foreldrum og börnum víðsvegar um heiminn til þess að meta andlegar og sálfélagslegar þarfir barna meðan á COVID19 stendur. Ramminn utan um efnistökin var unnin upp úr niðurstöðum könnunarinnar auk þess sem hún var prufukeyrð og endurbætt áður en hún var svo gefin út í endanlegri mynd.

„Hetjan mín ert þú“ ætti helst að vera lesin af foreldri, umönnunaraðila eða kennara fyrir barn eða lítinn barnahóp. Ekki er mælt með að börn lesi þessa bók sjálf án stuðnings foreldris, umönnunaraðila eða kennara. 

Bókin er til á: íslensku, ensku, úkraínsku, bahasa malay, arabísku, spænsku, þýsku, tyrknesku, dönsku, frönsku, kínversku, portúgölsku, rússnesku, búrmísku, sinhala, albanísku, grísku, ítölsku, tamíl, pólsku, búlgörsku, mongólsku, kóresku og lettnesku og væntanleg á fleiri tungumálum. Með því að smella hér má nálgast þessar útgáfur.

Verkefnið var þróað af viðmiðunarhópi samræmdu fastanefndarinnar um geðheilbrigði og sálfélagslegan stuðning við neyðaraðstæður. (Inter-Agency Standing Committee Reference Group on Mental Health and Psychosocial Support in Emergency Settings (IASC MHPSS RG).)