Viðskiptavinir Sjóvá greiða ekki fyrir bílatryggingar heimilisins í maí. Þetta á við um bæði lögboðnar ökutækjatryggingar og kaskó.
Á vef félagsins segir að ástæða þessa sé að umferð hafi dregist mikið saman eftir að samkomubann tók gildi og geri megi ráð fyir að slysum og tjónum fækki samhliða því.
Þess vegna viljum við bregðast við þessum tímabundnu aðstæðum þannig að einstaklingar greiði ekki fyrir tryggingar einkabíla sinna hjá okkur í maí, þótt þær séu auðvitað í fullu gildi. Þetta á við um alla einstaklinga sem eru með bifreiðatryggingar fyrir ökutæki í almennri notkun í gildi hjá okkur þann 1. maí.
Sjóvá
Allar nánari upplýsingar um þessa niðurfellingu er að finna á vef Sjóvá: Spurt og svarað