Velferð

Helstu breytingar á samkomubanni frá 4. maí

Tags: , , ,

-April 14, 2020

Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunun, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s. á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Rúmlega 1700 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega hundrað manns lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins. Sóttvarnalæknir bendir á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Það þýði að ef slakað er um of á gildandi takmörkunum skapist hætta á að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggur því til að slakað verði á takmörkunum í skrefum sem endurskoðuð verði með þriggja til fjögurra vikna millibili.

Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi:

Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 m fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
  • Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
  • Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
  • Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

Nokkur atriði sem haldast óbreytt:

  • Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
  • Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
  • Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
  • Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
  • Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.

Sjá nánar hér á vef stjórnarráðsins.